Vá hvað þetta ver skemmtileg ferð til Þrándheims
Ok að
sitja í 30-40 stiga heitum sal og hlusta á fyrirlestur frá
9-5 er kannski ekki það þægilegasta sem maður gerir en allt
hitt var hrikalega gaman. Það er alveg óhætt að segja að ef Ísland
hefði ekki verið á þessari ráðstefnu hefði mikið vantað. Við fórum
á kostum í leikrænum tilburðum, áttum að sjálfsögðu áhugaverðasta
matarborðið með hákarli, harðfiski og Brennivíni og
lékum á alls oddi
Það er ekki hægt að fara út í
nein smáatriði hér en einhver talaði
um slímhúðaflakk út í skógi hehe.
Ég þarf eiginlega að koma fyrir þremur utanlandsferðum fyrir
áramót en ég veit ekki hvort það takist. Málið er að ég fer á
fund til Köben í október og á svo tvo frímiða með Binnu
sem renna út um áramótin, það er alla vega skemmtilegra eiga of
marga miða til útlanda heldur en of fáa 
Skólinn er að byrja á mánudaginn og er ég bara farinn að hlakka
til og hef góða tilfinningu um að það verði ennþá skemmtilegra
heldur en í fyrra þar sem ég hef kynnst svo mikið af fólki úr
skólanum (t.d. þeim sem ég var með úti).
Að lokum er það að frétta af mér að við Binna erum að flytja inn
í í búð á Snorrabrautinni, gott mál það.
Hey ég gleymdi...svarið við gátunni er steinninn sem Davíð
kastaði í Golíat.